Ábyrgðaraðili vinnslu
Ábyrgðaraðili vinnslu persónuupplýsinga er Jón G. Sandholt, kt. 2401902579, Áshamar 7, 221 Hafnarfjörður. Hægt er að hafa samband vegna persónuverndarmála með tölvupósti á info@radstofun.is eða í síma 7772288.
Hvaða persónuupplýsingum er safnað?
Unnar kunna að vera upplýsingar á borð við nafn, símanúmer, netfang, aldur, núverandi vörsluaðila eða lífeyrissjóð, upplýsingar sem notandi skráir sjálfur í form og tæknilegar upplýsingar tengdar innsendingu forms.
Tilgangur vinnslu
Persónuupplýsingar sem berast í gegnum vefinn eru notaðar til að svara fyrirspurnum, meta stöðu notanda og hafa samband vegna ráðgjafar sem notandi hefur óskað eftir.
Vinnsluheimild
Vinnslan byggist á samþykki notanda og beiðni hans um að haft verði samband vegna persónulegrar ráðgjafar.
Hversu lengi eru gögn geymd?
Gögn eru geymd eins lengi og nauðsynlegt er til að svara beiðni, veita ráðgjöf, halda utan um samskipti og uppfylla lögmætar skyldur eða rekstrarþarfir. Beiðnir sem verða ekki að viðskiptasambandi kunna að vera merktar óvirkar eftir ákveðinn tíma, en admin getur áfram séð þær í CRM kerfi.
Miðlun til þriðja aðila
Upplýsingum kann að vera miðlað til Afkomu vátryggingarmiðlunar ehf., kt. 4203180730, Lyngháls 9, 110 Reykjavík, eftir því sem nauðsynlegt er til að veita ráðgjöf sem notandi hefur óskað eftir. Hægt er að hafa samband við Afkomu með tölvupósti á afkoma@afkoma.is eða í síma 5959300.
Hýsingaraðili og tæknilegir þjónustuaðilar
Gögn kunna að vera skráð í CRM kerfi rekstraraðila og hjá tæknilegum þjónustuaðilum sem koma að rekstri vefsins og kerfisins, þar á meðal hýsingar- og formvinnsluþjónustu.
Réttindi notenda
Notandi getur óskað eftir aðgangi að gögnum, leiðréttingu, eyðingu eða takmörkun vinnslu með því að hafa samband á info@radstofun.is.
Réttur til að draga samþykki til baka
Notandi getur hvenær sem er óskað eftir að samþykki sé dregið til baka. Afturköllun samþykkis hefur ekki áhrif á lögmæti vinnslu sem þegar hefur farið fram á grundvelli samþykkis.
Réttur til eyðingar
Notandi getur óskað eftir eyðingu gagna með því að senda beiðni á info@radstofun.is. Beiðnin verður metin með hliðsjón af lögmætum skyldum og þörf á varðveislu gagna.
Samband vegna persónuverndarbeiðna
Persónuverndarbeiðnir má senda á info@radstofun.is eða koma á framfæri í síma 7772288.